Pása eđa hvađ???Ađalheiđur Ragna Óladóttir

Kallar á Pásu..

ég er fokin yfir á sykur.bloggar.is

kannski koma eitthverjir smellir hingað inn

en sykur.bloggar.is allir þangað..

sykur.bloggar.is --> the best bloggsíða in the world

Draugurinn MóglíAđalheiđur Ragna Óladóttir

Hey, my name is Erls, I´m 17 years old girl, from Staður

Ég og Heiða fórum leiðangur í dag að skoða nýja IKEA...við lögðum í hann, en við fundum ekki neitt IKEA...við leituðum og leituðu...


en aldrei fundum við Ikea,

Við keyrðum og Keyrðum og keyrðum, en ekkert fundum
við mættum vinnuköllum..







Þeir voru póserar..
Þeir voru skotnir í okkur



hvað sést glitta þarna í??
 
IKEA



vááá..IKEA



snillingar, snillingssvipur



Við fengum blöðrur og Fána í Ikea

það réðst stór kall á Heiðu með rikbursta...

En nóg um það...
Áfram MSN heimur...

sjáumst:)

Kakan ógurlega..Ađalheiđur Ragna Óladóttir

Erla, að blogga hér fyrir Heiðu:)

Ég og Heiða vorum að baka köku, við vorum heilar fimm klukkustundir að baka kökuna, því miður fáið þið ekki að sjá útkommuna:)
Kaka er gullsins ýgildi
Þetta er körfuboltakakan okkar..

mamma mín er kínverji,
pabbi minn er aumingi
aumingja ég

Við skelltum okkur í Partý í gær..!! Hér er mynd..!









Stuð á Spáni

En fleiri myndir á www.123.is/onlyus

En við sjáumst á röltnu, eða kannski bara á rúntinum, ef þið sjáið gráann eða bláann kagga með lítið typpi lagið, þá erum við á ferð!! endilega vinka..!!

sjáumst!

..Ađalheiđur Ragna Óladóttir

Ég veit eiginlega ekki hvar ég á að byrja það er búið að ské svo mikið.. þannig ég ætla ekkert að byrja..



flippuð og kúl kveðja..

 

TobyAđalheiđur Ragna Óladóttir

       NIIIICEEEE!!!

hann er heitur!!!

 

Long time no bloggingAđalheiđur Ragna Óladóttir

Jæja, nú er komin líklega mánuður síðan ég bloggaði síðast.

Það er búið að vera alveg nóg að gera síðasta mánuðinn, eins og flestir vita var ég úti á Tenerife í byrjun ágústmánaðar 9-23 ágúst.. með alveg fullt af skemmtilegu fólki og var þetta bara mjög skemmtileg ferð :)



Karókíbarinn var vinsæll

Hér er verið að leggja lokahönd á tanið

Svo þegar heim var komið tók á móti manni skóli og æfingar.. Það var fínt að koma í skólann aftur og hitta allt fólkið og enn skemmtilegra var að byrja á æfingum :D :D

Síðustu helgi var svo afmæli hjá Rafni, sumir voru fullir og tóku bíllyklana mína með sér í bæinn nefni engin nöfn, eeen það var Ívar. Siggi var svo góður og fór og náði í lyklana mina fyrir mig svo ég kæmist heim :)

Á föstudaginn kom norkst fólk í matarboð, krakkarnir voru frekar fámál nema einn.. ég gaf honum bara jólasveinahúfuna mina og svo stakk ég af í bústað..

Ég, Erna, Erla og Dóra fórum í bústað til Heiðu.. við rötuðum ekki alveg í bústaðinn fyrst, við beygðum inn á vitlausum stað og við vorum að keyra á geðveikt drungalegum stað og stelpurnar voru alltaf að bregða hvor annarri þannnig ég sat þarna afturí í algeru panic kasti.. en svo loksins rötuðum við í bústaðinn þar var fullt af fólki sem ég þekkti ekki neitt og svo komu eitthverjir algerir sveitalúðar í heimsókn :'D Við stelpurnar ákvaðum að gista ekki og keyrðum í bæinn um nóttina, við komum við og fengum okkur gomsætann söbway áður en við fórum heim að lúlla.



Í gær kíktum ég, Erna og Erla á ljósanótt.. Hittum Oddrúnu sætu þar og Lóu vinkonu Erlu.. við fylgdumst með sálinni spila og horfðum á flugeldasýningu og fórum svo bara aftur í bæinn og kíktum á bæjarlífið í Reykjarvík.. við fórum í vöffluvagninn og fengum okkur vöfflu með súkkulaði og rjóma og við fengum það ókeypiss :D





svo þegar við vorum að fara heim úr bænum brunuðu fullt af löggubílum framúr okkur og við vorum svo forvitnar og ákváðum að elta. allir löggu bílarnir stefndu í áttina þar sem salapartý hjá ms var haldið.. þetta voru c.a 11 löggubílar eða meira.. ég held að ég hafi aldrei séð svona marga löggubíla á sama stað nema bara á bílastæðinu hjá löggunni :P
við lögðum bílnum þarna rétt hjá og fylgdumst spenntar með.. það kom strákur til okkar og sagði okkur að löggan hafi barið nokkra með kylfunum sínum og sumir höfðu fótbrotnað og handleggsbrotnað og læti.. það var bara allt brjálað.. Svo þegar löggan var að reka alla í burtu var eitthver sem kastaði flösku í átt að löggunni.. það var svoldið fyndið að fylgjast með þessu.. löggan hlaupandi þarna í allar áttir.. þetta var bara eins og góð hasarmynd í bíó




myndirnar eru frá Erlu, fleiri myndir eru hér: http://www.123.is/album/display.aspx?fn=onlyus&aid=1737956045

góđ skemmtun í úthlíđAđalheiđur Ragna Óladóttir

Ég og Erna fórum í Úthlíð í gær.. lögðum af stað kl.18.12..

þegar við komum í Úthlíð voru allir að grilla og við Erna hentum pulsunum okkar á grillið hjá þeim.. fengum okkur að borða..

sátumst svo inní partýtjaldið og Guðmann spilaði á gítar.. svo var þessi svakalega brenna þarna rétt hjá.. flugeldar og læti..

við skemmtum okkur konunglega þarna.. við Erna nenntum ekki að sofa í tjaldi þannig við bara keyrðum heim þegar líða fór á morgun, höfðum magic, doritos og geggjaða tónlist til að halda okkur vakandi á leiðinni heim..

.......... kannski vorum við ekki alveg vakandi alla leiðina því við keyrum á fugl..

smá myndbrot úr ferðinni :D ..











fleiri myndir eru hér:
http://blog.central.is/myzlunar?page=viewPage&id=977574

Buenos noches amigos.... :)Ađalheiđur Ragna Óladóttir

Ég er komin í SUMARFRí :D vá hvað það er gaman :P

Verslunarmannahelgin að koma eða bara komin, ég er að spá í að vera bara í bænum.. ég og Erna ætlum kannski að kíkja eina nótt í úthlíð á morgun :)

aðeins 5 dagar í Tenerife !!! :D







Ađalheiđur Ragna Óladóttir


ég var að finna þessa rosalegu mynd.. og mér fannst svoldið fyndið hvað ég er ýkt brosmild þarna.. haha.. tekið á Gothia cup í svíþjóð 2003

Gærkvöldið var ýkt spes.. fór til Halla með Eddu og þar voru Halli, Guðmann, Steini og svokíkti Ívar í smá stund.

Ég, Steini og Guðmann fórum svo heim til Guðmanns til að ná í gítar.. en það tók rosalega langan tíma því þeir þurftu að stoppa heima hjá Guðmanni og spila á gítar fyrir mömmu hans og pabba og svo ákváðu þeir að fara líka til Steina og spila fyrir fólkið þar.. þannig þegar við komum til Halla aftur var hann bara farin að sofa..

þá lá leiðin niður í bæ, þegar við komum niður í bæ voru strákarnir að tala við eitthvern vin sinn á bæjarins bestu og ég stóð þarna hjá þeim.. svo kemur gaur til min og tekur í hendina á mér og segir.. til hamingju þú ert eina stelpan á bæjarins bestu í kvöld.. hehe og þeir bjóða mér uppá pulsu.. ég fékk tvær pulsur en ég hafði enga lyst á þeim svo ég gaf Guðmanni og Steina þær bara :)

Þetta var bara frekar skemmtilegt kvöld miðað við að ég var edrú.. :P það tók svoldið langan tíma að fá þá heim úr bænum.. þeir stoppuðu á cm fresti til að tala við eitthvern.. en loksins komst ég heim til mín kl. korter í 8 í morgun :)


en i kvöld verður djammað.. :D

p.s Amma og Afi komu heim frá Grænlandi í gær og ég fór til þeirra í dag og fékk grænlenskt kex.. mér fannst það rosa gott :D

:D jíbbí jíbbí jeij jeij.. ég er svo kát :D:DAđalheiđur Ragna Óladóttir

Færeyskir dagar voru snilld

Ég, Guðbjörg og Hjördís tókum skyndiákvörðun í vinnunni á föstudaginn og ákváðum að skella okkur á ólafsvík.. við unnum eiginlega ekkert á föstudeginum því við vorum svo mikið að skipuleggja ferðina okkar.. hehe..
eftir vinnu fórum við að versla fyrir útileguna.. við versluðum mikið af allskyns drasli.. svo var farið heim að pakka og svo brunað vestur á ólafsvík! :D


ýkt gaman að bíða eftir að Guðbjörg kæmi að ná í mig.. :D

Guðbjörg kom að ná í mig og við brunuðum af stað á litla sæta bílnum hennar sem var límdur saman með límbandi.. :D það var rosalega gaman þarna og ég skemmti mér alveg konunglega..!!
............
Fór með Huldu í bæinn eftir vinnu í gær og hún gaf mér afmælisgjöf :D fékk rosalega flottan bol :D takk Hulda :*
svo fórum við og fengum okkur að borða á Horninu og ákváðum svo að fara í bíó á Click.. fórum bara tvær í bíóið en allt í einu vorum við orðin 47 manns þarna saman.. hehe.. mér fannst click bara helv.. góð mynd .. :P
............
þegar dagar eins og dagurinn í dag koma þá langar mig að lifa að eilífu.
þetta er besti dagur lífs míns.

  • ég fékk símann minn úr viðgerð og hann er í lagi!! :D
  • pabbi fór að ná í bílinn sinn úr viðgerð þannig ég er komin á bíl aftur!! loksins :D
  • ítalía vann þýskaland
  • ég fékk útborgað böns af pening
.............
Tenerife eftir 35 daga :D:D .. Hjördís er að fara þangað á morgun .. BEYGLA ..  á sama hótel og ég og alles.. Góða ferð Dísa skvísa

 við Guðbjörg verðum bara að skemmta okkur tvær í vinnunni á morgun og hinn og hinn og hinn og hinn og hinn o.s.frv..
 
Nenniþessuekkimeirasvoþangaðtilnæstblessbless!!!!

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Framundan!!!!

4.Ágúst - síđasti vinnudagurinn minn í OR
4-7.Ágúst - Rosaleg útilega
9.Ágúst - afmćli/morgunteiti hjá Gumma
9.Ágúst - Ég til TENERIFE
22.Ágúst - skólinn byrjar
23.Ágúst - koma heim frá Tenerife
25. Ágúst - Footloose :)
September - Réttir međ Erlu og Ernu